Ítarefni

Ítarefni og fróðleikur

Leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja er ætlað að nýtast sem verkfæri stjórna og stjórnenda til að mæta þeirri ábyrgð sem á þeim hvílir. Með því að fylgja góðum stjórnarháttum má styrkja innviði fyrirtækja og efla almennt traust gagnvart viðskiptalífinu. Hvort tveggja skiptir sköpum fyrir samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja.

Fróðleikur

Saga leiðbeininganna

Forsíður fyrri útgáfa leiðbeininganna: 2005, 2009, 2012, 2015 og 2021

Leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja eru gefnar út af Viðskiptaráði Íslands, Samtökum atvinnulífsins og Nasdaq Iceland. Þær komu fyrst út árið 2004 og hafa verið endurskoðaðar reglulega síðan. Sjöunda útgáfa tekur gildi 1. janúar 2027.

20267. útgáfa Gildir frá 1. janúar 2027Íslenska ↓English ↓
20093. útgáfaÍslenska ↓
20052. útgáfaÍslenska ↓
20041. útgáfaEkki aðgengileg á vef
Alþjóðlegt samstarf

Leiðbeiningar á Norðurlöndum

Starfshópurinn á í samstarfi við aðila sem gefa út sambærilegar leiðbeiningar í Evrópu og á Norðurlöndum, undir heitunum European Corporate Governance Network og Nordic Corporate Governance.

7. útgáfa

Starfshópur um stjórnarhætti fyrirtækja

Í starfshópnum sátu fulltrúar útgáfuaðila ásamt sérfræðingum úr atvinnulífi og háskólasamfélaginu. Við endurskoðunina var leitað til aðildarfyrirtækja Viðskiptaráðs og Samtaka atvinnulífsins, mennta- og eftirlitsstofnana, sérfræðinga í stjórnarháttum og stjórnarmanna íslenskra fyrirtækja.

Þóranna Jónsdóttir (formaður)
Sérfræðingur í stjórnarháttum
Árni Hrafn Gunnarsson
Yfirlögfræðingur Gildi lífeyrissjóðs
Ásthildur Otharsdóttir
Sérfræðingur í stjórnarháttum og stjórnarmaður
Baldur Thorlacius
Framkvæmdastjóri skráninga hjá Nasdaq Iceland
Heiðrún Björk Gísladóttir
Verkefnastjóri hjá Samtökum atvinnulífsins
Heiðrún Emilía Jónsdóttir
Framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja
Hjörleifur Pálsson
Löggiltur endurskoðandi og stjórnarmaður
Jón Björnsson
Forstjóri Veritas
Lilja Hrund Lúðvíksdóttir
Verkefnastjóri hjá Samtökum atvinnulífsins
Marta Guðrún Blöndal
Lögmaður og stjórnarmaður
Ólafur Arinbjörn Sigurðsson
Hæstaréttarlögmaður og eigandi LOGOS
Þröstur Olaf Sigurjónsson
Prófessor við Háskóla Íslands
Verkefnisstjóri 7. útgáfuLísbet SigurðardóttirLögfræðingur Viðskiptaráðs Íslands
Stjórnvísi

Úttekt á stjórnarháttum

Fulltrúi Kviku banka tekur við viðurkenningu sem Fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum
Afhending viðurkenningar Stjórnvísi

Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins, Nasdaq á Íslandi og Stjórnvísi hafa tekið höndum saman um að bæta eftirfylgni fyrirtækja við leiðbeiningar um góða stjórnarhætti. Öllum fyrirtækjum gefst tækifæri til að undirgangast formlegt mat á starfsháttum stjórnar og stjórnenda.

Framkvæmd matsins er í höndum Stjórnvísi, umsjónaraðila verkefnisins, en matsferlið byggir í meginatriðum á leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja. Úttektaraðilar sem metnir eru hæfir annast söfnun gagna, viðtöl við stjórnarmenn og skýrslugerð til félagsins og matsaðila á vegum Stjórnvísi.

Viðurkenning

Fyrirtæki sem standast matið fá viðurkenninguna „Fyrirmyndarfyrirtæki í stjórnarháttum“ sem gildir í þrjú ár, nema verulegar breytingar verði á stjórn eða eignarhaldi fyrirtækisins.

Framkvæmd

  1. Fyrirtæki hefur samband við Stjórnvísi eða Viðskiptaráð Íslands og ræður viðurkenndan úttektaraðila. Fyrirtækið ber kostnað af úttekt og þátttökugjaldi til Stjórnvísi.
  2. Að lokinni úttekt er skýrslan send framkvæmdastjóra Stjórnvísi og metin af þar til bærum aðila.
  3. Ár hvert, fyrir 31. maí, upplýsa viðurkennd fyrirtæki Stjórnvísi um breytingar á stjórn og framþróun stjórnarhátta.
  4. Að þremur árum liðnum fer fram ný úttekt til að viðhalda viðurkenningunni.
Hafa samband

Spurningar eða ábendingar um leiðbeiningarnar

Upplýsingar varðandi leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja veita tengiliðir hjá útgáfuaðilum.

Verkefnisstjóri 7. útgáfu
Lísbet Sigurðardóttir
Lögfræðingur, Viðskiptaráð Íslands
510 7100
Fyrirmyndarfyrirtæki — umsjón
Stjórnvísi
Umsjónaraðili matsferlis